Hleð…
+354 894 6090
Laugavegur 13, 4. hæð, 101 Reykjavík

Skaðabótaréttur

Slys geta haft veruleg áhrif á heilsu, starfsgetu og fjárhag. Lexista veitir einstaklingum lögfræðilega ráðgjöf og aðstoð við að kanna bótarétt, afla nauðsynlegra gagna og halda kröfum á hendur vátryggingafélögum eða öðrum bótaábyrgum aðilum.

Umferðarslys

Við aðstoðum einstaklinga sem hafa orðið fyrir líkamstjóni í umferðarslysum, hvort sem um er að ræða ökumenn, farþega, gangandi vegfarendur eða hjólreiðafólk. Aðstoðin getur meðal annars falist í tilkynningu tjóns, öflun gagna, samskiptum við vátryggingafélög og mati á mögulegum bótarétti.

Vinnuslys

Við veitum ráðgjöf vegna vinnuslysa og aðstoðum við að tryggja að slysið sé rétt tilkynnt og nauðsynleg gögn liggi fyrir. Jafnframt er kannað hvort réttur sé til bóta úr slysatryggingum, hjá Sjúkratryggingum Íslands eða á grundvelli skaðabótaábyrgðar.

Íþróttaslys

Við aðstoðum einstaklinga sem slasast við æfingar, keppni eða aðra íþróttaiðkun. Mögulegur bótaréttur getur meðal annars ráðist af vátryggingum, aðdraganda slyssins og því hvort einhver beri skaðabótaábyrgð vegna atvika þess.

Við metum hvert mál sérstaklega og veitum skýra ráðgjöf um mögulegan rétt og næstu skref.